Maríanna Hansen hefur verið ráðin deildarstjóri hjúkrunar á Sólteig og Mánateig, Hrafnistu Laugarási frá 1. sept. n.k.
Maríanna útskrifaðist sem hjúkrunarfræðingur B.Sc. frá Háskóla Íslands árið 2002. Hún hefur starfað m.a. sem deildarstjóri á Dvalarheimilinu Hlíð og sem deildarstjóri á endurhæfingardeild á Landakoti.