Margrét Malena Magnúsdóttir sem gegnt hefur verkefnastjórastöðu á Engey - Viðey hefur verið ráðin hjúkrunardeildarstjóri á Miklatorgi – Engey frá 2. maí n.k.
Margrét útskrifaðist sem hjúkrunarfræðingur B.Sc árið 2010 frá HÍ. Hún lauk diplomanámi í öldrunarhjúkrun frá HÍ 2017 og diploma í opinberri stjórnsýslu fyrir stjórnendur í heilbrigðisþjónustu frá HÍ 2018. Hún hóf störf á Hrafnistu 2007 og hefur starfað sem hjúkrunarfræðingur frá 2010.