Svanhvít Guðmundsdóttir sjúkraliði verður deildarstjóri dagdvalar á Hrafnistu Ísafold frá mánudeginum 1. apríl nk. Svanhvít útskrifaðist sem sjúkraliði í desember 2001 og vann þá á Hrafnistu Hraunvangi til ársins 2012. Svanhvít hefur starfað á Ísafold frá árinu 2014 og frá 2018 sem verkstjóra sjúkraliði á Snæfelli og Ásbyrgi. Við bjóðum Svanhvíti velkomna í stjórnendahóp Hrafnistu.