Þorrablót Hrafnistu Laugarási var haldið á bóndadaginn, föstudaginn 25.janúar sl., við mikinn fjölda íbúa og þeirra gesta. Þorrablótið hófst kl. 17:00 þar sem veislustjóri kvöldsins Guðrún Árný Karlsdóttir hélt uppi stuðinu með söng og gamni. Minni kvenna var í höndum Oddgeirs Reynissonar framkvæmdarstjóra rekstrarsviðs og minni karla tók Guðrún Árný að sér. Eftir skemmtunina gæddu allir sér á gómsætum þorramat og Bragi Fannar harmonikkuleikari spilaði undir borðhaldi. Skemmtuninni var sjónvarpað á Hrafnisturásinni svo þeir íbúar sem treystu sér ekki til að koma í Skálafell gátu fylgst með í setustofum ásamt því að borða þorramat á deildum.
Morgunblaðið var með skemmtilega umfjöllun um þorrablótið inn á mbl.is
Mjög vel heppnað og ánægjulegt kvöld á Hrafnistu eins og myndir sýna.