Dolores R. Magdaraog, starfsmaður í ræstingu á Hrafnistu í Hafnarfirði, hefur starfað á Hrafnistu í 15 ár. Um leið og við óskum henni til hamingju með áfangann er henni þakkað fyrir gott starf og þá tryggð sem hún hefur sýnt heimilinu.
Á meðfylgjandi mynd eru frá vinstri: Árdís Hulda Eiríksdóttir forstöðumaður Hrafnistu í Hafnarfirði, Dolores R. Magdaraog, Kristín Benediktsdóttir ræstingastjóri Hrafnistu í Hafnarfirði og Pétur Magnússon forstjóri Hrafnistu.