Elínborg Jóna Ólafsdóttir hefur verið ráðin deildarstjóri dagþjálfunar fyrir einstaklinga með heilabilun á Hrafnistu í Reykjavík en fyrirhugað er að opna dagþjálfunardeild fyrir 30 einstaklinga með heilabilun í febrúar á næsta ári.
Elínborg lauk BS prófi í hjúkrunarfræði frá Háskóla Íslands árið 2003 og lauk diploma í gjörgæsluhjúkrun frá sama skóla árið 2017 og hefur víðtæka starfsreynslu sem hjúkrunarfræðingur og stjórnandi. Hún hefur meðal annars starfað sem hjúkrunarfræðingur á Landspítalanum og á heilsugæslunni. Einnig hefur hún starfað sem deildarstjóri á hjúkrunarheimilunum Hlévangi og Mörk.