Eitt af meginmarkmiðum sjóðsins er að stuðla að nýjungum og þróun í málefnum aldraðra. Sjóðurinn er opinn öllum þeim sem að stunda rannsóknir, formlegt nám eða hvað annað sem mun efla þennan málaflokk hér á landi.
Umsóknarfrestur er til 3. nóvember 2018 og skulu umsóknir sendar á netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
Umsókn skal fylgja:
a) Stutt lýsing á verkefninu
b) Tíma- og kostnaðaráætlun
c) Aðrir styrkir sem sótt er um fyrir sama verkefni
Sú kvöð fylgir styrkveitingu að niðurstöður verkefnisins séu kynntar á Hrafnistu í ræðu og riti auk þess að rannsóknarsjóðurinn áskilur sér rétt til að krefjast endurgreiðslu innan 3 ára ef hætt hefur verið við verkefnið.
Nánari upplýsingar fást hjá gæðastjóra Hrafnistu, Nönnu G. Sigurðardóttur í síma 585-9402.