Top header icons

Fyrir starfsfólk

 

Örugg skjalamótttaka

Örugg skjalamótttaka

Fyrir starfsfólk

Hrafnista á Facebook

Viðurkenningar til útskriftarnema á Hrafnistu

Á hverju ári eru veittar viðurkenningar á Hrafnistu til þeirra starfsmanna sem hafa útskrifast úr námi á árinu. Margir starfsmenn Hrafnistu stunda ýmiskonar nám með vinnu og í morgun veittu María Fjóla, framkvæmdastjóri heilbrigðissviðs og Árdís forstöðumaður Kristínu Thomsen, iðjuþjálfa á Hrafnistu í Hafnarfirði, viðurkenningu en Kristín lauk diplómanámi í öldrunarþjónustu sl. vor. Við óskum henni og öllum þeim starfsmönnum sem lokið hafa námi á þessu ári innilega til hamingju með áfangann.

  • Á meðfylgjandi mynd eru frá vinstri: María Fjóla framkvæmdarstjóri heilbrigðissviðs, Harpa Björgvinsdóttir deildarstjóri iðjuþjálfunar, Kristín Thomsen og Árdís Hulda forstöðumaður Hrafnistu í Hafnarfirði. 

     

     

     

     

    Til baka takki

    Þessi vefsíða notar kökur (cookies). Með því að halda áfram að nota vefinn, samþykkir þú þessa virkni vefsins.
    Samþykkja kökur