Elstu nemendur á leikskólanum Víðivöllum í Hafnarfirði heimsóttu Sjávar- og Ægishraun á Hrafnistu í Hafnarfirði í morgun. Þessi hópur var að koma í heimsókn í fyrsta skiptið og það var sungið, litað og spjallað saman. Einstaklega góð samvera sem heimilisfólk og leikskólabörnin áttu saman í dag.