Í morgun komu börn frá leikskólanum Norðurbergi í heimsókn á Báruhraun, Hrafnistu í Hafnarfirði. Það er alltaf tilhlökkun að fá börnin til okkar í heimsókn þegar haustið gengur í garð, en síðastliðin 5 ár hefur samstarf verið á milli Hrafnistu og leikskólanna í nærumhverfi heimilisins.