Hrafnista í Reykjavík hélt þessa ljómandi fínu grillveilsu í hádeginu í gær fyrir íbúa og starfsfólk. Grillað var fyrir rúmlega 300 manns og var mikið fjör i veðurblíðunni á Laugarásnum en þetta var klárlega sólríkasti dagur sumarsins hérna megin á landinu. Svona fjölmenna grillveislu þarf reyndar að undirbúa með góðum fyrirvara og starfsfólkið í Reykjavík er greinilega alveg með á hreinu hvernig á að stíla inn á veðrið.
Veislan í veðurblíðunni tókst ákaflega vel eins og meðfylgjandi myndir sýna.