Hrafnista hélt sína árlegu sumarhátíð á Nesvöllum í hádeginu í gær. Boðið var upp á grillaðan kjúkling og lambakjöt með öllu tilheyrandi. Þrátt fyrir sòlarleysið komu um 150 manns og nutu þess að borða góðan mat og hlusta á Hjörleif úr bandinu Heiður flytja nokkur vel valin íslensk lög.