Lovísa Jóhannsdóttir, sjúkraliði á Báruhrauni Hrafnistu Hafnarfirði, hefur starfað á Hrafnistu í 30 ár. Um leið og við óskum henni til hamingju með áfangann er henni þakkað fyrir gott starf og þá tryggð sem hún hefur sýnt heimilinu.
Á meðfylgjandi mynd eru frá vinstri: Árdís Hulda Eiríksdóttir forstöðumaður Hrafnistu í Hafnarfirði, Anný Lára Emilsdóttir deildarstjóri á Báruhrauni, Lovísa og Pétur Magnússon forstjóri Hrafnistu.