Sandra Ósk Eysteinsdóttir hefur verið ráðin í starf verkefnastjóra heilbrigðissviðs Hrafnistuheimilanna.
Um er að ræða tímabundið starf innan heilbrigðissvið Hrafnistu.
Sandra mun í samvinnu við framkvæmdastjóra heilbrigðissviðs bera ábyrgð á samræmingu og samþættingu á heilbrigðisþjónustu innan Hrafnistuheimilanna, ásamt innleiðingu og framkvæmd á samræmdri stefnu Hrafnistu. Hún mun einnig taka þátt í stefnumótun, markmiðasetningu og áætlanagerð sem snýr að Heilbrigðissviði Hrafnistu.
Sandra mun taka við ákveðnum verkefnum af Bjarneyju Sigurðardóttur, verkefnastjóra sviðsins, sem mun fara tímabundið inn á Hrafnistu í Garðabæ Ísafold sem verkefnastjóri. Sandra mun einnig halda utan um ákveðna gæðahópa ásamt því að halda utan um þjónustu Heilsuverndar í samstarfi við framkvæmdastjóra sviðsins.
Sandra Ósk er hjúkrunarfræðingur að mennt með bæði reynslu af hjúkrun og stjórnun. Hún er nú starfandi aðstoðardeildarstjóri á Krabbameinslækningadeild Landspítalans en hefur þar einnig leyst af sem deildarstjóri. Hún hefur reynslu af innleiðingu verkefna og eftirfylgni, rekstri, gæðastarfi og fleiru sem á eftir að efla heilbrigðissvið Hrafnistu í þjónustu við deildir og aðra starfsemi Hrafnistuheimilanna.