Saga jólakorta Hrafnistu
Sú skemmtilega hefð skapaðist fyrir 9 árum síðan að ákveðið var að fá þá fjölmörgu listamenn Hrafnistu til liðs við okkur í að skapa jólakort Hrafnistuheimilanna. Ákveðið var að halda keppni og fá fólk til að senda inn tillögur: máluðum myndum sem yrði notað á jólakort Hrafnistuheimilanna. Fjölmargar tillögur hafa borist okkur ár hvert og gaman að sjá fjölbreytileikann og jólaminningarnar sem skapast í myndunum. Flestar tillögurnar hafa komið frá Hafnarfirðinum og Reykjavík.
Jólakort Hrafnistu er prentað í 3500 eintökum og sent til allra heimilismanna, starfsmanna og annarra viðskiptavina og velunnara Hrafnistu. Hafnafjörðurinn hefur verið með flestar vinningsmyndir og gaman að segja frá því að Guðbjörg Sigrún Björnsdóttir hefur verið með vinningsmyndina þrisvar sinnum og Sigríður Ólafsdóttir tvisvar sinnum.
2007 Guðný Baldursdóttir Hrafnista Hafnarfjörður
2008 Guðbjörg Sigrún Björnsdóttir Hrafnista Hafnarfjörður
2009 Guðbjörg Sigrún Björnsdóttir Hrafnista Hafnarfjörður
2010 Kristín H. Tryggvadóttir Hrafnista Hafnarfjörður
2011 Sigríður Ólafsdóttir Hrafnista Reykjavík
2012 Sigríður Ólafsdóttir Hrafnista Reykjavík
2013 Gerða Hammer Hrafnista Hafnarfjörður
2014 Elínbjörg Kristjánsdóttir Hrafnista Hafnarfjörður
2015 Guðbjörg Sigrún Björnsdóttir Hrafnista Hafnarfjörður
Í dómnefnd jólakortasamkeppninnar sitja Leifur Breiðfjörð myndlistamaður, Sigríður G. Jóhannsdóttir vefnaðarkennari og Guðný M. Magnúsdóttir myndlistamaður. Við erum ótrúlega þakklát dómnefndinni fyrir vel unnin störf síðastliðin 9 ár og þökkum þeim kærlega fyrir alla hjálpina.
Í ár verður hægt að kaupa jólakort Hrafnistu og kostar stykkið 300 krónur og rennur allur ágóðinn til iðjuþjálfunar á Hrafnistuheimilunum.
2016 er 10 ára afmæli keppninnar og aldrei að vita nema við lumum á einhverjum nýjungum. Upp hafa komið hugmyndir um að stofna jólaljóða- eða jólakvæðasamkeppni sem væri með í jólakortinu.
Inni í jólakortinu 2015 er jólakvæði sem dóttir Guðbjargar Sigrúnar Björnsdóttur orti.
Besti tíminn nálgast brátt,
bráðum koma jól.
Syngjum allir saman í sátt,
sálminn Heims um ból.
(Halla Þórhallsdóttir)
Jólakveðja
Sigurbjörg Hannesdóttir
Deildarstjóri iðjuþjálfunar
Hrafnista Reykjavík og Kópavogur
Hér má sjá jólakortin í réttri tímaröð frá 2007 til 2015