• Workplace
  • 1. Hvað er Workplace?

    Workplace er samskiptamiðill fyrir vinnustaði. Workplace byggir á sömu eiginleikum og viðmóti og Facebook, enda er hugbúnaðurinn framleiddur af sama aðila. Workplace-lausnin er sérsniðin fyrir umhverfi fyrirtækja og stofnana.

  • 2. Hvers vegna ætlar Hrafnista að innleiða Workplace?

    1. Auka samskipti og bæta flæði upplýsinga á Hrafnistu, bæði innan deilda og í þverfaglegum teymum. Þetta mun minnka vinnustaðinn, færa fólk nær hvort öðru og styrkja samheldni.
     
    2. Workplace er skilvirkur hugbúnaður, sem er ætlað að auka afköst og bæta samvinnu, þekkingarmiðlun og verkferla. Jafnframt getur Workplace með réttri notkun dregið úr fyrirspurnum, símtölum og tölvupósti.
     
    3. Workplace er lokaður og öruggur samfélagsmiðill fyrir starfsfólk Hrafnistu. Workplace er aðgangsstýrð lausn. Starfsfólk fær sjálfvirkt boð um skráningu. Við starfslok lokast fyrir aðgang. Þar af leiðir meðal annars að Workplace-hópar (grúppur) munu einvörðungu innihalda núverandi starfsfólk Hrafnistu.
     
    4. Workplace gerir öllu starfsfólki kleift að miðla fréttum og fjölbreyttum upplýsingum í eigin hópum (grúppum). Starfsfólk er eindregið hvatt til að taka virkan þátt í fréttamiðlun í sínum grúppum, í máli og myndum
     
  • 3. Hvernig græja er þetta?

    Workplace er annars vegar veflausn, sem keyrir í vafra (browser) og hins vegar app fyrir bæði Apple IOS og Android. Farðu í App Store eða Play Store og sæktu öppin „"Workplace by Facebook" og "Workplace Chat by Facebook" “. Kjarnavirkni Workplace felst í hópum (grúppum), fréttum (news feed) og samtölum með texta, hljóði og/eða mynd (chat), viðburðum (events), könnunum (polls) og skjalasamskiptum (docs). Innbyggð í lausnina eru öflug leit og tilkynningar.

  • 4. Hvernig skrái ég mig inn í Workplace?

    Skráning tekur örfáar mínútur.
     
    Hægt er að komast inn í Workplace með tvenns konar hætti.
     
    1. Þriðjudaginn 6. nóvember fær allt starfsfólk Hrafnistu boð (invite) frá kerfinu í tölvupósti. Einfalt er að fylgja leiðbeiningum í þeim pósti til að setja upp aðgang.
     
    2. Fyrir og eftir þann tíma getur hver sem er skráð sig inn í kerfið á eigin spýtur, óháð því hvort boð hefur borist í pósti eða ekki. Notendanafn er netfang starfsfólks með @hrafnista.is-endingu, en lykilorð velur fólk sjálft. Smelltu hérna til að skrá þig inn í Workplace. Til að skrá þig inn í Workplace á eigin spýtur afritaðu þessa slóð: https://workplace.facebook.com/ og límdu inn í vafrann þinn.
     
  • 5. Workplace… fyrstu skrefin

    Mikilvægt er að fullklára skráningu strax í upphafi, til dæmis með því að velja prófílmynd sem er lýsandi og fagleg. Workplace er vinnutól og myndin á að vera í samræmi við það. Síðan er bara að hefjast handa og ganga í viðeigandi hópa (groups) og jafnvel stofna hóp, fylgja samstarfsfólki eftir (follow), stilla tilkynningar (notifications) og ná í öppin fyrir farsíma (Facebook Workplace og Facebook Workplace Chat). Öppin eru ótrúlega gagnleg og líklegt að megnið af upplýsingaflæðinu fari þar fram í framtíðinni. Öppin virka innan sem utan Hrafnistu, óháð sérstökum gagnatengingum.

  • 6. Mikilvæg ábending um tilkynningar

    Sjálfgefin stilling Workplace er að senda í tölvupósti tilkynningar um allt sem er að gerast þar. Nýir notendur, fréttir, viðburðir, umræður o.s.frv. Starfsfólk Hrafnistu er hvatt til þess að fara í stillingar á Workplace (bæði í vafra og snjallsíma-appi) og slökkva á tilkynningum í tölvupósti: https://workplace.facebook.com/settings?tab=notifications§ion=email&view 
     
    Einnig er hægt að fara í stillingar (settings) í bæði vafra og snjallsíma-appi og slökkva á öðrum tilkynningum eftir hentugleika. Það er einfalt að breyta stillingum á tíðni tilkynninga ef þér finnast upplýsingar í viðkomandi hópi ekki vera gagnlegar.
     
  • 7. Tengist Workplace persónulegum Facebook-reikningi mínum?

    Nei. Workplace er ekki Facebook, þótt hugbúnaðurinn komi frá sama aðila. Útlitið, viðmótið og virknin er sú sama. Engar upplýsingar flæða á milli Facebook og Workplace. Workplace er vinnutól á meðan Facebook er persónulegur samskiptamiðill einstaklinga. Hægt er að hafa bæði Workplace og Facebook opin í sama vafra og hoppa auðveldlega á milli.

  • 8. Hvað verður um innri vef Hrafnistu (innrivefur.hrafnista.is)

    Fyrst um sinn verður lítil breyting á innri vef Hrafnistu. Smám saman færast þó tilkynningar, fréttir og matseðlar yfir á Workplace. Starfsmannahandbækur, gæðaskjöl og ýmsar dýpri upplýsingar um starfsemina verða áfram á innri vef, einnig tenglar í helstu kerfi.

  • 9. Fimm góðar ábendingar um hópa (groups)

    1. Vinsamlegast hættið noktun á hópum á Facebook og færið þá virkni yfir á Workplace hið fyrsta. 
     
    2. Búið er að stofna hópa (groups) á Workplace fyrir öll helstu svið og deildir Hrafnistu. Starfsfólki hefur verið bætt í sína deildarhópa.
     
    3. Þessu til viðbótar eru komnir margir aðrir hópar, meðal annars um Mannauðsmál, Tilkynningar, Viðburði, Námskeið og fleira, sem starfsfólk er hvatt til að ganga í.
     
    4. Starfsfólk er hvatt til að vera ófeimið við að stofna annars vegar hópa um vinnutengd málefni og hins vegar hópa um áhugamál og skemmtanir innan Hrafnistu (dæmi: hjólað í vinnuna og viðburði innan Hrafnistu, t.d. starfsmannafélögin). 
     
    5. Notið hópa sem gagnast í starfi og samskiptum við samstarfsfólk. Ekki vera hluti af öllum hópum. Ef hópurinn þjónar ekki tilgangi fyrir þig er í lagi að skrá sig úr honum. Þú metur.
     
  • 10. Gilda sérstakar samskiptareglur á Workplace?

    Nei. Mikilvægt er að viðhafa sömu faglegu vinnubrögð og hegðun á Workplace eins og í öðrum störfum fyrir Hrafnistu. Workplace má ekki nota til að deila viðkvæmum upplýsingum sem falla undir klíníska starfsemi, sjúklingagögn, trúnaðarupplýsingar, persónulega hagi o.þ.h. Annar hugbúnaður Hrafnistu er sérstaklega hugsaður fyrir slík samskipti; Heilsugátt, Saga og fleiri kerfi. Sömu lögmál gilda um friðhelgi einkalífsins á Workplace eins og annars staðar.

  • 11. Workplace er vinnutól

    Workplace er fyrir málefni sem tengjast vinnustaðnum, starfsfólki og áhugamálum eins og þau tengjast vinnunni. Workplace er ekki fyrir persónuleg málefni eða skoðanir okkar á mönnum og málefnum hversdagsins. Sýnum skynsemi. Ekki bjóða öllum í deildargrúppunni í partý eftir vinnu. Notaðu starfsmannahópinn „Partýljón á Hrafnistu“ til þess ?

  • 12. „Merktu“ vinnufélagana

    Merktu vinnufélaga í þeim póstum sem koma þeim við (tags), á sama hátt og þú gerir á Facebook. Með þessu tryggjum við flæði upplýsinga til réttra aðila.

  • 13. Nytsemi #-myllumerkja (hashtags)

    Verum dugleg að nota myllumerki eða #hashtag. Til dæmis þegar póstað er mynd frá heimili þá er gott að setja mynd af byggingunni og #laugarás. Með því að merkja hluti og umræður með myllumerki, þá er auðvelt að leita að þessu síðar meir.

  • 14. Nokkur orð um deilingar á skjölum

    Deildu og vistaðu skjölum sem skipta máli. Hafðu heiti skjalanna lýsandi fyrir verkefnið til að samstarfsfólk finni auðveldlega það sem það leitar að. Hafðu þó í huga að Workplace er ekki hugsað til skjalavistunar heldur til að deila upplýsingum þótt vissulega sé hentugt að deila skjölum þar.

Til baka takki